Veturinn 2023-024 fór fram á vegum stjórnenda ReykjavíkurAkademíunnar umfangsmikil skoðun á stjórnskipulagi stofnunarinnar þar sem unnið var að því að festa niður tilgang og starfsemi ReykjavíkurAkademíunnar og skilgreina hlutverk allra þeirra sem vinna að því að stýra og reka stofnunina og lýsa á skýran hátt hvar ábyrgðin liggur og hvernig samvinnu milli aðila er háttað. Unnið var skipurit sem fangar festir í sessi hlutverk og ábyrgð stjórnar og starfsnefnda, starfsfólks á skrifstofu og ýmissa aðila sem starfa að því að byggja upp ReykjavíkurAkademíuna til lengri og skemmri tíma.
Niðurstaða vinnunnar var gefin út í formi skýrslunnar Stjórnskipulag. Ábyrgð og samhæfing stjórna, starfsfólks og verkefnisstjóra. Ritstjórar Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir og Lilja Hjartardóttir (ReykjavíkurAkademían, 2024) RA-2024.2