Hvernig stendur Stjórnarskrá Íslands í alþjóðlegu samhengi og uppfyllir hún nauðsynlegar þarfir nútímaríkja? Hefur stjórnarskráin verið forsenda nýrrar samfélagsgerðar og framfara undanfarin 150 ár?
Í tilefni þess að 150 ár eru liðin síðan Stjórnarskrá Íslands gekk í gildi boðar ReykjavíkurAkademían til málstofu í Þjóðminjasafninu.
Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, setur málstofuna og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra 2017–2024, stýrir pallborðsumræðum að loknum fyrirlestrum.
Aðalfyrirlesari málstofunnar verður Róbert Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann flytur erindi um núgildandi stjórnarskrá í alþjóðlegu samhengi.
Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri stjórnskipunar í forsætisráðuneytinu, flytur erindið „Endurskoðun stjórnarskrárinnar: Sagan endalausa?“ Einnig kynna sagnfræðingarnir Lára Magnúsardóttir og Þór Martinsson og stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson ný sjónarmið um efnið. Fundarstjóri er Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar, nú doktorsnemi við Gautaborgarháskóla og fræðimaður við RA.
Dagskrá:
14.00 Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, setur málstofuna.
14.10 „Staða núgildandi stjórnarskrár í alþjóðlegu ljósi“ Róbert Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu.
15.00 „Stjórnskipunarlög í 1.000 ár“ Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur.
15.20 „Hugmyndafræðin að baki Stjórnarskrá Íslands 1874“ Þór Martinsson, sagnfræðingur.
15.40 „Er stjórnarskráin dönsk?“ Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur.
16.00 „Endurskoðun stjórnarskrárinnar: Sagan endalausa?“ Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri stjórnskipunar í forsætisráðuneytinu.
16.20 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra 2017–2024, stjórnar pallborðsumræðum.
17.00 Málstofu slitið, léttar veitingar.