Stjórnir Hagþenkis, Rithöfundasambands Íslands, Bandalags
þýðenda og túlka, Reykjavíkur Akademíunnar, Blaðamannafélags
Íslands og PEN á Íslandi vilja af gefnu tilefni minna á eftirfarandi:
Einn af hornsteinum stjórnarskrár Íslands er óskoraður réttur
borgaranna til þátttöku í opinni samfélagsumræðu á fundum,
í dagblöðum, á netsíðum, ljósvakamiðlum eða í bókum.
Allar tilraunir flokka, stofnanna, fyrirtækja eða einstaklinga til þess
að þagga niður í höfundum texta sem birta skoðanir sem þeim eru
eru andstæðar – t.d. með skipulögðum atlögum að velferð höfundar,
lögsóknum, hótunum um atvinnumissi eða mannorðsmeiðingum sem
grafa undan öryggi hans – eru jafnframt aðför að sjálfu tjáningarfrelsinu.
Þyki hópum eða einstaklingum að sér vegið í ræðu eða riti, þá stendur
þeim til boða, nú sem fyrr, að svara fyrir sig með sama hætti. Það kallast
skoðanaskipti – jafnvel ritdeilur – og er siðaðra manna háttur í löndum
þar sem lýðréttindi ríkja.
Sjón – Sigurjón Birgir Sigurðsson formaður PEN á Íslandi, [email protected]
Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands, 568 3190, 861 9509
Jón Yngvi Jóhannsson formaður Hagþenkis, 820 0871
Sölvi Björn Sigurðsson formaður Bandalags þýðenda og túlka, 695 1235
Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands, 553 9155/568 3155
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavíkur Akademíunnar, 562 856/892 1215