Fjórða íslenska söguþingið verður haldið í húsakynnum Háskóla Íslands 7.-10. júní 2012. Þessi þing eru orðin fastur viðburður, fyrsta þingið var haldið árið 1997, annað árið 2002 og hið þriðja árið 2006. Þingið nú þjónar sem áður allt í senn sem vettvangur fyrir kynningu á niðurstöðum nýjustu rannsókna í íslenskri sagnfræði, veitir yfirlit yfir stöðu þeirra nú og þar er rætt um hvert stefnir í rannsóknum á sviðinu.
Þingið verður veglegt og í boði verða á þriðja tug málstofa um hin ýmsu efni með yfir 90 fyrirlestrum. Ber þetta glöggan vott um öflugar rannsóknir á hinum ýmsu sviðum íslenskrar sögu. Þingið verður líka óvenju alþjóðlegt í þetta sinn en Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands hefur boðið þremur heimsþekktum sagnfræðingum til þingsins, þeim Lindu Colley prófessor við Princeton háskóla, David Cannadine, prófessor við Princeton háskóla og Geoff Eley, prófessor við háskólann í Michigan í Bandaríkjunum. Linda Colley mun flytja Jóns Sigurðssonar-fyrirlesturinn þetta árið. Þar að auki munu tveir erlendir fyrirlesarar tala á opinni málstofu um Evrópumál sem styrkt er af Evrópustofu. Þetta eru þau Anne Katherine Isaacs, prófessor við háskólann í Písa, og Anne Deighton, prófessor við háskólann í Oxford. Að síðustu mun Karl-Erik Frandsen, lektor við Kaupmannahafnarháskóla, tala í málstofu um sjúkdómafaraldra á fyrri tíð.
Fullt ráðstefnugjald er 9.900 krónur en nemendur greiða tæplega hálft gjald, eða 4.900 krónur.