Á dögunum fékk RA skemmtilega og gefandi heimsókn frá Atalaya – pólsku menntasetri – sem aðstoðar uppeldisstofnanir, skóla og fyrirtæki við innleiðingu framsækinna kennsluaðferða og starfshátta.
Hugmyndafræði Atalaya er sú að persónulegur þroski einstaklinga sé helsta forsenda nýsköpunar og framfara, hvort sem um ræðir í einkalífinu eða annars staðar.
Heimsóknin var á vegum Bjargar Árnadóttur – framkvæmdastjóra Stílvopnsins ehf. – en mikið samstarf er á milli hennar og Atalaya hugsjónafólksins. Endilega kynnið ykkur starfsemina nánar hér.