ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg blása til ráðstefnu föstudaginn 17. nóvember næstkomandi um óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu.
Skortur á leiguhúsnæði og hátt leiguverð veldur því að óhefðbundið búsetuform er vaxandi vandamál hérlendis. Talið er að hópur efnalítilla Íslendinga og erlent verkafólk búi við slíkar aðstæður.
Ráðstefnan er mikilvægur áfangi í umfangsmikilli úttekt RA á þessu vaxandi samfélagslega vandamáli. Helstu samstarfsaðilar RA og Reykjavíkurborgar í verkefninu eru Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Hagstofa Íslands, Þjóðskrá Íslands, Vinnumálastofnun, ASÍ, Starfsgreinasamband Íslands, Retor fræðsla ehf., ásamt mörgum fleiri.
Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni er Gillian Young frá Newhaven Research í Skotlandi. Gillian er öflugur fræðimaður á sviði húsnæðismála og búsetu í óleyfilegu húsnæði, þá sérstaklega þegar kemur að búsetuskilyrðum erlends verkafólks.
Ráðstefnan verður haldin í sal Norræna hússins. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Dagskrá
13:00 Setningarorð – Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Verkafólk og húsnæði á tímum alþjóðavæðingar
13:10 Local accommodation: migration and the shaping of local housing systems
Gillian Young, forstöðukona Newhaven Research í Skotlandi og rannsóknaprófessor við Heriot Watt háskólann.
13:45 Alþjóðavæðingin og verkafólk
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands
14:05 Húsnæðisaðstæður innflytjenda á Íslandi – niðurstöður rýnihópaviðtala
Guðbjörg Ottósdóttir, lektor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands
Búseta í ólöglegu húsnæði á Íslandi
14:25 Greining gagna um óleyfisbúsetu á Íslandi
Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur og Svandís Nína Jónsdóttir, gagnasérfræðingur og framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
15:00 Kaffihlé
15:20 Óleyfisíbúðir, staðan nú og leiðir til aukins öryggis
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS
15:35 Búseta í óhefðbundnu húsnæði í Reykjavík – niðurstöður úr manntalinu 2011
Ómar Harðarson, fagstjóri hjá Hagstofu Íslands
15:50 Lög um lögheimilisskráningu og væntanlegar breytingar
Þyrí Steingr
ímsdóttir, hæstaréttarlögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur
Tengsl vinnumarkaðar og óleyfisbúsetu
16:05 Erlent vinnuafl á vinnumarkaði – hlutverk Vinnumálastofnunar, áskoranir og sóknarfæri. Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri VMST
16:20 Kjör erlendra verkamanna og starfsmannaleigur
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
16:35 Umræður
17:00 Dagskrárlok
Fundarstjóri: Linda Blöndal, dagskrárgerðarkona