Í Öndvegi fimmtudaginn 2. nóvember næstkomandi mun Árni Finnsson stíga á stokk og fjalla um loftslagsbreytingar og þær ógnir sem stafa af stefnu Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, í loftslagsmálum. Samkvæmt venju verður fundurinn haldinn í fundarsal RA í Bókasafni Dagsbrúnar á fjórðu hæð í Þórunnartúni 2, kl. 12:00-13:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Léttar veitingar í boði.