Framkvæmdastjóri hefur umsjón með starfsemi og málefnum ReykjavíkurAkademíunnar í umboði stjórnar.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á og annast fjármál, bæði vegna reksturs ReykjavíkurAkademíunnar og rannsóknarverkefna á hennar vegum, skrifstofuhald, skipulags- og húsnæðismál RA, kynningarmál og samstarf við stofnanir og fyrirtæki, rekstur tækja og miðlægs búnaðar og rekstur sameiginlegrar aðstöðu – og önnur mál sem stjórn felur honum.
Helstu verkefni
- Stefnumótun RA í samvinnu við stjórn.
- Efling rannsókna á vegum RA.
- Umsjón með kynningarmálum.
- Umsjón með samningum RA við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
- Rekstur og fjármálaumsýsla.
- Fjáröflun til starfsemi RA.
- Umsjón með funda- og ráðstefnuhaldi í samvinnu við stjórn og einstaka félaga.
Hæfniskröfur
- Meistaragráða eða annað framhaldsnám frá háskóla.
- Reynsla af stjórnun, fjármálum og rekstri.
- Reynsla af rannsóknum og/eða utanumhaldi rannsóknarverkefna.
- Þátttaka í viðburðastjórnun er kostur.
- Faglegur metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð tungumálakunnátta.
Aðrar upplýsingar
Laun taka mið af gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsókn fylgi kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Einnig fylgi náms- og starfsferilsskrá umsókninni. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2018.
Nánari upplýsingar veita Dr. Ingunn Ásdísardóttir, stjórnarformaður, ([email protected]) í síma 869-8312 og Svandís Nína Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, ([email protected]) í síma 772-5586.
Sjá auglýsingu sem birtist á storf.is.