1. maí var fluttur á Rás 1 þátturinn Verst er farið með vinnukonurnar – Frásagnir af nokkrum harðduglegum konum í umsjón Akademónsin Lilju Hjartardóttur. Óhætt er að mæla með þættinum sem er afar innihaldsríkur og vekur athygli okkar á kjörum vinnukvenna, hóps sem of sjaldan er talað um. Í kynningu á heimasíðu RÚV segir:
Vinnukonur fyrri tíma áttu margar hverjar erfiða ævi. Þær þræluðu í þágu annarra meðan þær höfðu þrek til en þrátt fyrir að þær væru fjölmennasta stétt landsins eru þær aukapersónur í Íslandssögunni, oftast nafnlausar og flestum gleymdar. Án strits þeirra hefði samfélagið hvorki þrifist né dafnað – það hefði ekki lifað af. Í þættinum rifjar Lilja Hjartardóttir upp sögur nokkurra vinnukvenna og ræðir jafnframt við Vilborgu Dagbjartsdóttur, skáld og rithöfund.
Hægt er að hlusta á þáttinn til og með 30. júlí 2020.