20.11.2008
Við viljum mennska framtíð
– vellíðan fólksins, mannréttindi allsstaðar, frið og tilveru án ofbeldis
Laugardaginn 22. nóvember n.k. frá klukkan 10 – 17 stendur Húmanistahreyfingin fyrir málþingi í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna. Málþingið verður haldið í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar .
Á þeim viðsjárverðu tímum sem við nú lifum er mikilvægt að hugleiða að hverju við stefnum í framtíðinni. Að vinna að eflingu mennskunnar er viðmið sem flestir geta verið sammála um. Á fundinum verða framsöguræður, pallborðsumræður og umræður í hópum með almennri þátttöku.
Nánari upplýsingar veita:
Júlíus Valdimarsson: 897 7403
Methúsalem Þórisson: 661 5621