ReykjavíkurAkademían hefur ráðið Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðing, í tímabundna stöðu verkefnisstjóra í verkefni um óleyfilega búsetu í Reykjavík. Jón Rúnar lauk BA prófi í félagsfræði við Háskóla Íslands árið 1975 og Phil. Lic. prófi í sömu grein við Uppsalaháskóla árið 1999. RA býður Jón Rúnar velkominn til starfa.