Ágætu félagsmenn
Boðað er til aðalfundar Félags ReykjavíkurAkademíunnar, fimmtudaginn 3. júní 2021, kl. 12.00 Í fundarsal félagsins, Þórunnartúni 2, 1. hæð (hjá Bókasafni Dagsbrúnar). Á fundinum er kosið í stjórn Félags ReykjavíkurAkademíunnar og stjórn ReykjavíkurAkademíunnar ses og hér með er höfða til ábyrgðakenndar félagsmanna og auglýst eftir framboðum til stjórnanna. Þá eru félagsmenn hvattir til þess að mæta á fundinn.
Athygli félagsmanna er vakin á því að fyrir fundinum liggur tillaga til breytingar á lögum Félags ReykjavíkurAkademíunnar sem má sjá neðar í þessum texta. Einnig má skoða tillöguna um breytingu á lögum FRA hér.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning embættismanna fundarins.
- Skýrsla stjórnar Félags ReykjavíkurAkademíunnar (FRA).
- Reikningar félagsins.
- Umræður um skýrslu stjórnar og atkvæðagreiðsla um reikninga félagsins.
- Skýrsla um starfsemi RA-ses.
- Reikningar RA-ses bornir upp.
- Lagabreytingar. Tillögur um lagabreytingar skulu liggja frammi minnst viku fyrir aðalfund og kynntar félagsmönnum.
- Kjör formanns Félags ReykjavíkurAkademíunnar.
- Kjör fjögurra stjórnarmanna.
- Kosning formanns RA-ses og fjögurra manna til setu í stjórn RA-ses og tveggja til vara..
- Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga Félags ReykjavíkurAkademíunnar.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn sem eru viðstaddir fundinn og hafa greitt félagsgjald
Lagabreytingar
TILLAGA TIL BREYTINGA Á LÖGUM FÉLAGS REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR
SEM SAMÞYKKT VORU Á AÐALFUNDI 2008.
Lagt er til að gerð verði eftirfarandi breytingu á 4. gr. laga Félags ReykjavíkurAkademíunnar:
„og með opinberri tilkynningu í fjölmiðli.” verði „og með opinberri tilkynningu á vefmiðlum ReykjavíkurAkademíunnar.“
Einnig að bætt verði við sömu grein eftirfarandi setningu: „Framboð til beggja stjórna sem kosnar eru á aðalfundi skulu berast skrifstofu með fjögurra daga fyrirvara.“