Samhliða útgáfu stefnu ReykjavíkurAkademíunnar 2021−2025 ákvað stjórn stofnunarinnar að vinna markvisst að því að bæta og auka þjónustuna í Þórunnartúni 2 við félagsfólk og að tala máli þess bæði á vinnumarkaði og í umhverfi rannsókna. Gefin var út Stefnuskrá stjórnar RA 2021-2022 eða aðgerðaáætlun sem unnið var eftir með það að markmiði að ReykjavíkurAkademían verði miðja samfélags sjálfstætt starfandi fræðafólks og starfi í þágu þess og samfélagsins alls að því að tengja, miðla, hvetja, styðja og skapa.
Til að ná því markmiði var verkefninu skipt niður í fjögur undirmarkmið sem öll skarast með einum eða öðrum hætti:
- skilgreina hópinn og fylkja liði
- styrking rannsóknainnviða og umhverfi rannsókna
- leiða í ljós hagræn áhrif af starfsemi sjálfstætt starfandi fræðafólks
- gæta hagsmuna fræðafólks á vinnumarkaði
Verkefnið er umfangsmikið, tekur tíma og fara þarf fram á ólíkum sviðum og í samvinnu við ýmsa hagaðila. Aðgerðir til að ná markmiðunum taka sífelldum breytingum og því hefur stjórn ReykjavíkurAkademíunnar 2022-2024 uppfært stefnuskránna undir heitinu Samfélag sjálfstætt starfandi fræðafólks. Aðgerðaráætlun stjórnar 2022- 2024 sem kemur út í skýrsluröð RA nr. RA-2024-1 í ritstjórn Lilju Hjartardóttur formanns stjórnar.