Aðalfundur ReykjavíkurAkademíunnar
verður haldinn miðvikudaginn 6. júní næstkomandi kl. 10:30 í fundarsal félagsins, Þórunnartúni 2, 4. hæð (hjá Bókasafni Dagsbrúnar). Meðal annars verður sagt frá starfsemi RA á liðnu ári, reikningar bornir upp og kosið í stjórn.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning embættismanna fundarins.
2. Skýrsla stjórnar Félags ReykjavíkurAkademíunnar.
3. Reikningar félagsins.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og atkvæðagreiðsla um reikninga félagsins.
5. Skýrsla um starfssemi RA-ses.
6. Reikningar RA-ses bornir upp.
7. Lagabreytingar. Tillögur umlagabreytingar skulu liggja frammi minnst viku fyrir aðalfund og kynntar félagsmönnum.
8. Kjör formanns Félags ReykjavíkurAkademíunnar.
9. Kjör fjögurra stjórnarmanna.
10. Kosning til setu í stjórn RA-ses.
11. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga Félags ReykjavíkurAkademíunnar.
12. Ákvörðun félagsgjalda.
13. Önnur mál.
Stjórnin.