
Aðalfundur ReykjavíkurAkademíunnar,
Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna,
verður haldinn
föstudaginn 15. apríl kl. 12:15
í fundarsal félagsins að Hringbraut 121, 4. hæð.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins og stjórnarkjör.
Atkvæðisrétt á fundinum hafa félagsmenn sem eru viðstaddir og hafa greitt félagsgjald.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
(1) Kosning embættismanna fundarins.
(2) Skýrsla stjórnar.
(3) Reikningar félagsins.
(4) Kjör í stjórnir ReykjavíkurAkademíunnar ses og Félags ReykjavíkurAkademíunnar.
(5) Önnur mál.
Stjórnin