Í gær, fimmtudaginn 23. september, var tilkynnt um starfsstyrki Hagþenkis 2010 við hátíðlega athöfn þar semstyrkþegum voru færðar rauðar rósir. 12 milljónum króna var úthlutað til 38 verkefna og voru akademónar sérdeilislega fengsælir.
Gylfi Gunnlaugsson og Clarence E. Glad voru meðal þeirra fjögurra sem hæstan styrk hlutu, 600.000 kr. Clarence fyrir verkefnið Rannsókn á áhrifum nýhúmanismans og grískrómverskrar arfleifðar á íslenska þjóðernisumræðu á tímabilinu 1830-1918 og Gylfi til verkefnisins Þættir úr viðtökusögu norrænna fornbókmennta.
Aðrir demónar (núverandi eða sem hér hafa verið á síðustu misserum) sem hlutu styrki eru:
Gunnþóra Ólafsdóttir 300.000 kr
Ritun bókar byggðri á doktorsritgerðinni Relating to Nature: The performative spaces of Icelandic tourism
Ingunn Ásdísardóttir 300.000 kr
Frigg – Freyja – Jötnar (kaflar í yfirlitsrit um norræna goðafræði á ensku) 300.000
Ingunn Þóra Magnúsdóttir 300.000 kr
Íslenskir listamenn í eldlínu – Baráttusaga. Menningarferð í samfylgd Bandalags íslenskra listamanna
Jón Yngvi Jóhannsson 300.000 kr
Ævisaga Gunnars Gunnarssonar
Viðar Þorsteinsson: 300.000 kr
Palestína – landið bakvið múrinn
Þá hlutu tveir Akureyrarakademónar styrki:
Jón Hjaltason 600.000 kr
Fáein ár (1857-1869) í ævi Sveins Þórarinssonar og eiginkonu hans Sigríðar Jónsdóttur (foreldrar Nonna)
Margrét Guðmundsdóttir 300.000 kr
Dagbækur Elku Björnsdóttur (1881–1924) verkakonu í Reykjavík með formála og eftirmála
ReykjavíkurAkademían óskar styrkþegum innilega til hamingju og velfarnaðar í fræðistörfum sínum.