Alþjóðleg og þverfagleg ráðstefna tileinkuð náttúrutengdri ferðamennsku 5.-6. febrúar 2011
Vekjum athygli á ráðstefnunni Practicing Nature-Based Tourism sem haldin verður í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur helgina 5.-6. febrúar 2011. Ráðstefnan er, ásamt alþjóðlegri myndlistarsýningu í safninu, þáttur í verkefninu Án áfangastaðar. Það er þverfaglegt grasrótarverkefni sem hefur að markmiði að hvetja til umræðu í íslensku samfélagi um málefni Íslands sem áfangastaður ferðamanna; stuðla að fræðslu um eðli náttúrutengdrar ferðamennsku, einkum er varðar upplifun ferðamanna á vettvangi; og hvetja til frekari rannsókna og skírari stefnumótunar í ferðamennsku á Íslandi. Ráðstefnan er tilraun til að leiða saman hina ólíku hópa sem standa að íslenskri ferðaþjónustu og efla samskiptin á milli þeirra á þessum umbrotatímum í íslensku efnahagslífi þegar mikilvægt er að vinna sameiginlega að sjálfbærri þróun atvinnugreinarinnar. Hún er einnig hugsuð sem tækifæri fyrir innlenda og erlenda rannsakendur að koma niðurstöðum sínum á framfæri til samfélagsins. Myndlistarsýningin endurspeglar hins vegar hugmyndir alþjóðlegra listamanna um ferðalög og hin gagnvirku tengsl manneskju og staðar.
Ráðstefnan er tvískipt – fyrst fræðsla um náttúrutengda ferðamennsku, síðan umræður um ferðamannalandið Ísland. Alls verða flutt 25 erindi á ráðstefnunni (sjá dagskrá neðar). Meðal fyrirlesara eru Lucy R. Lippard, Galisteo, New Mexico, margverðlaunaður rithöfundur og samfélagsrýnir, sem mun fjalla um þá ótal þætti sem mynda ‘stað og stund’ og þá margþættu auðlind sem ferðaþjónustuaðilar gera út á á hverjum stað og hverjum tíma; dr. Tim Edensor, landfræðingur hjá Manchester Metropolitan University, sem er einn af forkólfum í fyrirbærafræðilegum rannsóknum á ferðamennsku sem hafa á síðustu 10-15 árum innleitt nýja og dýpri sýn á veruleika ferðamanna. Hann mun fjalla um þá ólíku hópa ferðamanna sem ferðast um náttúruna og ólíka hagsmuni þeirra; og einnig má nefna Päivi Lappalainen verkefnastjóra á opinberu finnsku klasaverkefni sem stefnir að því að gera Finnland að einum aðaláfangastað Evrópu árið 2020, en Finnar eins og Íslendingar byggja ferðaþjónustu sína fyrst og fremst á náttúrutengdri ferðamennsku.
Á eftir þéttskipaðri fræðsludagskrá sem spannar einn og hálfan dag verða pallborðsumræður þar sem rætt verður um þær áskoranir sem blasa við ferðamannalandinu Íslandi – hvar það stendur og hvert það stefnir nú á tímum aukins ferðamannastraums og álags. Inngangsorð umræðunar eru:
Ferðaþjónustan er önnur tveggja atvinnugreina sem Íslendingar binda hvað mestar vonir við til að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Tölfræðileg teikn eru á lofti um að ferðaþjónustan gæti staðið undir efnahagslegum væntingum, sér í lagi ef spár standast. Ferðmannastraumurinn til Íslands tvöfaldast á næstu 5 árum og útflutningstekjurnar aukast í samræmi við það. Full þörf er hins vegar á að horfa á aðrar hliðar málsins. Samkvæmt opinberri skilgreiningu sem og nýjustu rannsóknum er náttúra Íslands meginaðdráttarafl landsins sem áfangastaður ferðamanna og hún er þegar farin að spillast umfram þolmörk á vinsælum ferðamannastöðum. Ferðaþjónustan á þar að auki í samkeppni um land við aðrar atvinnugreinar, sér í lagi orkugeirann. Landið byggist hratt upp og óskipulega og lítill skilningur virðist vera á því að vernda þurfi náttúrulegt landslag til að tryggja ferðaþjónustunni þann starfsgrundvöll sem hún þarf til að vaxa og dafna. Þar fyrir utan gæti aukinn ferðamannastraumur mögulega ógnað þeim aðstæðum og hughrifum sem menn eru komnir til Íslands til að upplifa.
Pallborðið verður skipað helstu ráðamönnum íslensku ferðaþjónustunnar ásamt fagfólki í greininni og sérfræðingum á þessu sviði sem munu reifa stöðuna út frá bæjardyrum síns fags. Þeir eru:
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar (SAF)
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Siv Fridleifsdóttir, alþingismaður
Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólasetursins í Hornafirði
Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands og þjóðgarðsvörður Þingvalla
Einar Torfi Finnsson, framleiðslustjóri og einn af eigendum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Ósk Vilhjálmsdóttir, leiðsögumaður og eigandi Hálendisferða
Einar Bollason, framkvæmdastjóri og eigandi Íshesta
Ráðstefnugestir verða auk þess hvattir til að spyrja og leggja orð í belg. Fræðsludagskráin fer fram á ensku, en umræðufundurinn á íslensku. Fundarstóri fræðsludagskrár er Edward Huijbens, framkvæmdastjóri Rannsóknamiðstöðvar Ferðamála. Fundarstjóri pallborðs er Viðar Hreinsson, rithöfundu
r og stjórnarformaður ReykjavíkurAkademíunnar.
Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin á meðan húsrúm leyfir. Þátttöku á ráðstefnuna skal tilkynna fyrir kl. 13, föstudaginn 4. febrúar 2011, með því að senda nafn og heimilisfang á netfangið without.destination.
Samstarfsaðilar:
Listasafn Reykjavíkur, ReykjavíkurAkademían og Félag Landfræðinga
Laugardagur, 5. febrúar 2011
08.00-09.00 Kaffi og croissant
09.00-09.05 Ávarp skipuleggjenda, dr. Gunnþóru Ólafsdóttur, landfræðings og Markúsar Þórs Andréssonar, sýningarstjóra.
09.05-09.10 Opnunarávarp Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra
Málstofa 1: Ferðaþjónustuaðilinn
09.10-09.50 Aðalfyrirlesari: Lucy R. Lippard, rithöfundur, sýningastjóri og samfélagsrýnir, Galisteo, New Mexico
Imagine Being Here Now
09.50-10.10 Dr. Unnur Birna Karlsdóttir, sagnfræðingur, Þjóðskjalasafni Íslands
Nature worth seing. The tourist-gaze as a factor in shaping ideas of nature in
Iceland 1900-2010
10.10-10.30 Dr. Ian Watson, dósent við Háskólann á Bifröst
How tour operators and travel guidebooks select destinations
10.50-11.10 Dr. Sigrún Birgisdóttir, lektor og yfirmaður arkítektúrdeildar Listaháskóla Íslands
Vatnavinir – Friends of Water
11.10-11.30 The Wild North Group: Hrafnhildur Ýr Viglundsdóttir, verkefnastjóri hjá Selasetri Íslands, Hvammstanga og Dr. Per Åke Nilson,sérfræðingur í náttúrutengdri ferðamennsku við Háskólann á Hólum og Selasetur Íslands; Dr. Marianne H. Rasmussen, sjávarspendýrafræðingur og forstöðumaður Rannsókna- og fræðasetus Háskóla Íslands á Norðausturlandi, Húsavík og Ester R. Unnsteinsdóttir, líffræðingur og forstöðumaður Melrakkaseturs Íslands, Súðavík
The Wild North Project
11.30-11.50 Dr. Kristín Þorleifsdóttir, landslagsarkítekt og eigandi Vist & Vera ehf
Sustainable Sites and Nature-based Activities
11.50-12.10 Dr. Lára Magnúsardóttir, forstöðumaður, Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Norðvesturlandi, Skagaströnd
Natu
re and Heritage – Putting Cultural Tourism into Motion
Málstofa 2: Ferðamannastaðurinn
13.30-14.10 Aðalfyrirlesari: Päivi Lappalainen, verkefnastjóri, Tourism and Experience management competence cluster (OSKE), Turku, Finnlandi
Building the future of tourism through innovation and networking
14.10-14.30 Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur, ReykjavíkurAkademíunni
On Images and the North
14.30-14.50 Prófessor Guðrún Helgadóttir and Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, lektor í ferðamálafræði við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
The idea of Iceland; idyllic images in art and marketing
14.50-15.10 Dr. Tinna Grétarsdóttir, mannfræðingur og lektor við Háskóla Íslands, Hannes Lárusson, listamaður og Ásmundur Ásmundsson, listamaður
Haunted by nature tourism. Icelandic art and the branding of Iceland as a destination
15.30-15.50 Prófessor Peter Fredman, umhverfis- og ferðamálafræðingur við European Tourism Research Institute (ETOUR), Mid Sweden University.
Visitor monitoring and integrated research on nature-based recreation. Experiences from Sweden
15.50-16.10 Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, Prófessor Jarkko Saarinen, Department of Geography, University of Oulu, Finnlandi, og Prófessor C. Michael Hall, Department of Management, University of Canterbury, Nýja Sjálandi
Icelandic wilderness tourism – present status and future development
16.10-16.30 Dr. Rannveig Ólafsdóttir, dósent í landfræði við Háskóla Íslands
Practicing Nature-based tourism in fragile environments – Visitor impact assessment
Síðdegishressing
17.00-17.20 Dr. Katrin Anna Lund, mannfræðingur og dósent í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
The many ‘natures’ of Reykjavík as experienced through city walks
17.20-17.40 Dr. Avril Maddrell, dósent í landfræði, University of the West of England
Tapping the spiritual landscape: pilgrimage walk on the Isle of Man
17.40-18.00 Gísli Pálsson, M.A. nemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands
Re-situating nature: ruins of modernity as ‘náttúruperlur’
18.00-19.00 Móttaka í boði Reykjavíkurborgar
Sunnudagur, 6. febrúar 2011
08.00-09.00 Kaffi og sætabrauð
Málstofa 3: Ferðalangurinn
09.00-09.40 Aðalfyrirlesari: Dr. Tim Edensor, dósent í menningarlandfræði við Department of Geography & Environmental Management, Manchester Metropolitan University
Contesting understandings and uses of the countryside: the diversification of rural tourism
09.40-10.00 Dr. Per Åke Nilsson, sérfræðingur í náttúrutengdri ferðamennsku við Selsetur Íslands, Hvammstanga og Háskólann á Hólum
10.00-10.20 Hildigunnur Sverrisdóttir, arkítekt og stundakennari við Listaháskóla Íslands
Rest the horses, let us rest
10.20-10.40 Einar Garibaldi Eiríksson, listamaður og lektor við Listaháskóla Íslands
Reykjavík: The Concealed City
11.00-11.20 Eric Ellingsen, landslagsarkítekt hjá Species of Spaces/Institute für Raumexperimente, Germany
Mobile in a mobile element
11.20-11.40 Dr. Bettina van Hoven, dósent í menningarlandfræði við University of Groningen, Hollandi
Multi-sensory experiences in the Great Bear Rainforest
11.40-12.00 Akke Folmer, lektor í ferðamálafræði við Stenden University, Hollandi
The role of wildlife in visitors’ attachment to nature-based tourism destinations
12.00-12.20 Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir, landfræðingur, ReykjavíkurAkademíunni
Iceland’s nurturing landscapes: Knowing the client – knowing the resource.
14.00-16.00 Pallborðsumræður (á íslensku)
Ferðamannalandið Ísland. Núverandi staða og málefni til sjálfbærrar þróunar
Fundarstjóri:
Viðar Hreinsson, rithöfundur og stjórnarformaður ReykjavíkurAkademíunnar
Þátttakendur:
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar (SAF)
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Siv Fridleifsdóttir, alþingismaður
Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
Dr. Þorvardur Árnason, forstöðumaður Háskólasetursins á Hornafirði
Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands og þjóðgarðsvörðu Þingvalla
Einar Torfi Finnsson, framleiðslustjóri og einn af eigendum Íslenskra fjallaleiðsögumanna
Ósk Vilhjálmsdóttir, leiðsögumaður og eigandi Hálendisferða
Einar Bollason, framkvæmdastjóri og eigandi Íshesta
16.00-17.00 Ráðstefnuslit og móttaka í boði Ferðamálastofu.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri ávarpar ráðstefnugesti.
*Málstofur fara fram á ensku en umræðufundurinn um ferðamannalandið Ísland á íslensku