Ársskýrsla ReykjavíkurAkademíunnar ses. (RA) fyrir árið 2018 hefur verið birt. Að þessu sinni er stikklað á stóru í skýrslunni sem er gerð að Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur sem tók við stöðu framkvæmdastjóra RA um miðjan október 2018.
ReykjavíkurAkademían ses (RA ses) er sjálfseignarstofnun sem byggir á grunni Félags ReykjavíkurAkademíunnar sem er félag sjálfstætt starfandi fræðimanna í menningar- , hug- og félagsvísindum á Íslandi. Stofnunin er í senn vinnustaður, vettvangur fræðilegra viðburða og umræðu og félagsleg miðja sjálfstæðra rannsókna. Alls eru 40 fræðimenn starfandi innan hennar vébanda í dag.
Hér má nálgast skýrsluna: Ársskýrsla RA ses 2018