Atli Antonsson – félagi okkar í ReykjavíkurAkademíunni – mun verja doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði, Kvika þjóðarinnar. Þættir úr menningarsögu íslenskra eldgosa frá átjándu öld til okkar daga.
Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. Eru félagar hvattir til þess að mæta.
Andmælendur við vörnina verða Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, og Simon Halink, sérfræðingur í menningarsögu við Fryske Academy í Hollandi.
Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Guðna Elíssonar, prófessors í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, og Sumarliði R. Ísleifsson, dósent í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands.
Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Í doktorsritgerðinni var reynt að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvernig hefur nábýli Íslendinga við eldfjöll mótað sjálfsmynd þeirra og hugmyndir um þjóðerni og sögu síðustu 250 árin? Markmið Atla var að finna svar við rannsóknarspurningunni með því að greina frásagnir af eldgosum frá 18. öld til nútímans. Leitað var svara í lýsingum og frásögnum af eldgosum og eldfjöllum sem finna má í skáldsögum, ljóðum, sjálfsævisögum og svokölluðum eldritum frá þessu tímabili. Afrakstur rannsóknarinnar voru fjórar greinar sem hafa komið út í ritrýndum fræðitímaritum og einn kafli að auki. Í þeim er rannsóknarspurningunni svarað úr ólíkum áttum og meðal annars fjallað um guðfræði og fagurfræði eldgosa, eldfjöll í ættjarðarljóðum þjóðskálda, viðtökusögu eldklerksins Jóns Steingrímssonar, eldgos í skáldsögum og eldrit á mannöld.
Um doktorsefnið
Atli Antonsson er með BA-próf í almennri bókmenntafræði með heimspeki sem aukagrein frá Háskóla Íslands og MA-próf í evrópskum bókmenntum frá Humboldt háskóla í Berlín.