Hinn árlegi Dagsbrúnarfyrirlestur RA, Bókasafns Dagsbrúnar og Eflingar – stéttarfélags verður haldinn í hádeginu fimmtudaginn 22. mars næstkomandi, kl. 12:00 til 13:15. Dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, mun fjalla um eftirlaun aldraðra hér á landi og þróunina í kjörum þeirra.
Barátta verkalýðsfélaga fyrir auknum félagslegum réttindum á borð við lífeyrisréttindi er ekki eins sýnileg og baráttan fyrir hækkuðu kaupgjaldi. Af þessum sökum munu Dagsbrúnarfyrirlestrar RA til næstu ára beina sjónum að félagslegum réttindum launþega, þá ekki síst réttindum þeirra sem hverfa tímabundið eða ótímabundið af vinnumarkaði sökum aldurs eða heilsutjóns.
Samkvæmt venju er fyrirlesturinn haldinn í fundarsal RA í Bókasafni Dagsbrúnar á fjórðu hæð að Þórunnartúni 2.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Léttar veitingar í boði.