ReykjavíkurAkademían er þátttakandi í DigiStorID rannsóknarverkefninu í gegnum Akademóninn Salvöru Aradóttur. Nú stendur yfir á Ítalíu fyrsta alþjóðlega vinnustofa verkefnisins sem gengur út á að veita fólki með þroskahömlun tækifæri til þess að búa til litlar sögur með því að nýta stafræna miðla. Þátttakendur og leiðbeinendur þeirra eru í aðalhlutverki en hlutverk Salvarar og Ólafs Hrafns Júlíussonar er að fylgjast með, leiðbeina og móta aðferðarfræðina.
Hægt er að lesa nánar um verkefnið og fylgjast með framgangi þess, bæði á heimasíðu verkefnisins og Facebooksíðu.