ReykjavíkurAkademían tók veturinn 2015-2016 þátt í verkefni á vegum Uppbyggingarsjóðs EES. Þátttakendur auk Íslands voru Noregur og Slóvakía en Akademían áttu aðeins í samstarfi við Slóvakíu, Nadácia Milana Šimečku stofnunina í Bratislava.
Verkefnið hét Engaging Socially Disadvanted Groups into Cultural Life in Slovakia og átti sér stað á tveimur sviðum:
Björg Árnadóttir skipulagði fyrir hönd ReykjavíkurAkademíunnar vikulanga kynnisferð ofangreindra slóvakískra mannréttindasamtaka um íslenskt velferðarkerfi með áherslu á málefni innflytjenda.
Hljómsveitin Retro Stefsson fór fyrir tilstilli ReykjavíkurAkademíunnar á fjölmenningarviðburð í Slóvakíu.

Björg Árnadóttir á tali við Laco Oravec, framkvæmdastjóra Nadácia Milana Šimečku stofnunarinnar í Slóvakíu.