6.11.2008
Fallvaltar ímyndir Íslands. Fimmtudagur 6. nóvember kl. 20:00-22:00. Pallborðsumræður um ímyndir Íslands eftir “hrunið”. Þáttakendur: Árni Finnsson, Björn Friðfinnsson, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Þorfinnur Ómarsson, Þorgerður Þorvaldsdóttir.
Athugasemdir og viðbrögð: Hjálmar Sveinsson
Í stuttum erindum munu þátttakendur í umræðunum fjalla um hvernig ímyndir um Ísland hafa birst varðandi alþjóðaviðskipti og -stjórnmál, jafnréttismál, listir og menningu og ferðamál, hvernig brugðist hafi verið við þessum ímyndum og hvort og hvaða áhrif megi vænta að „hrunið“ hafi á þessi viðhorf, sjá nánar á www.inor.is
Á eftir erindunum verða almennar umræður.