Guðrún Hallgrímsdóttir sem starfar við ReykjavíkurAkademíuna, hlaut verðlaunin Gold Innovative Food of the Year 2023 AWARD WINNER frá GLOBALWIIN, (Global Women Inventors & Innovators Network) sem veitt voru á ársfundi samtakanna í Hörpu 7. september síðastliðinn.
Samtökin GLOBALWIIN voru upphaflega stofnuð til að fylla upp í gendargap á alþjóðlega vísu og vekja athygli á framlagi kvenna. Verðlaunin eru veitt til að vekja athygli á konum sérstaklega sem með nýjum aðferðum, þjónustu eða vöru leggja sitt af mörkum til að ná sameiginlegu markmiði okkar allra; aukin lífsgæði og betri heimur.
Perez Ochiengm forstjóri SACOMA Global foods Innovation, ,,UK limited company with a social impact and innovation-led food business model aiming to develop new innovative food products” afhenti verðlaunin.
Verðlaun Guðrúnar eru fyrir framlag hennar og samstarfsmanna í Hyndlu, þeirra Bjarna Bjarnasonar og Gests Ólafssonar svo og vísindamannsins og samastarfsmanns, Karls Gunnarssonar, við að þróa ræktun stórþörunga innanhúss í borholusjó til neyslu og hvers kyns efnavinnslu og þannig m.a. að hafa áhrif á matarframboð framtíðar, draga úr kolefnisspori neyslu og vernda lífríkið.
Hipp, hipp húrra fyrir Guðrúnu okkar Hallgrímsdóttur!