HUGMYNDIR 21. ALDARINNAR
NÚ ENDURHEIMT
Upptökur af málþingi ReykjavíkurAkademíunnar sem haldið var
laugardaginn 27. september 2014, kl. 11:00 – 15:00 í sal ReykjavíkurAkademíunnar
í JL-Húsinu Hringbraut 121
Smellið á nöfn fyrirlesara til að nálgast upptökur af fyrirlestrunum.
Páll Jakob Líndal: Nú verður fjallað um sálfræðilega endurheimt.
Páll er doktor í umhverfissálfræði frá University of Sydney og vinnur að rannsóknum um hvernig þétta megi byggð þannig að hún hafi jákvæð áhrif á fólk
Magnús Gestsson: Nú er listin endurheimt en hvar er galleríið.
Magnús er doktor í safnafræðum frá School of Museum Studies, University of Leicester. Rannsóknarsvið hans er samtímamyndlist, sjónlistir í almannarými og listmarkaðir.
Elsa Eiríksdóttir: Samhengi núsins og endurheimt þekkingar.
Elsa er doktor í verkfræðilegri sálfræði frá Georgia Institute of Technology. Rannsóknarsvið hennar er hvernig verkleg kunnátta lærist og færni yfirfærist á nýjar aðstæður.
Unnur G. Óttarsdóttir: Nú er námsfærni endurheimt með skrifmyndum.
Unnur er doktor í listmeðferð frá University of Hertforshire í Englandi. Rannsóknarsvið hennar er listmeðferð og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Unnur rekur listmeðferðarstofu.
Umræðustjóri var Guðrún Ingólfsdóttir