Á bókasafninu er góð lesaðstaða fyrir þá sem nýta safnkostinn og bæði Ráðslag, fundarhergi RA og Dagsbrún, fyrirlestrarsalurinn eru fyrirtaks rými búin búnaði til fjarfunda, streymis og upptöku sem m.a. félagsmenn Félags ReykjavíkurAkademíunnar (FRA) geta nýtt sér. Skrifstofur sjálfstætt starfandi fræðimanna eru á annarri hæð Akademíunnar.
Á vefsíðu ReykjavíkurAkademíunnar er hægt að fylgjast með því sem er efst á baugi hverju sinni og einnig er hægt að skrá sig á Forum, póstlista ReykavíkurAkademíunnar með því að ýta á hlekk sem er neðst á forsíðu vefsíðu stofnunnarinnar www.akademia.is. Þar er hægt að kynna sér starfsemi RA og hvort heldur sem er sækja um aðild að FRA eða um vinnuaðstöðu í Þórunnartúni 2 .
Mikilvægum áfanga verður náð þegar nýr forstöðumaður bókasafnsins, Sigurgeir Finnsson upplýsingafræðingur, hefur störf við safnið og Akademíuna í byrjun nýs árs.
Verið hjartanlega velkomin í ReykjavíkurAkademíuna og á Bókasafn Dagsbrúnar.