1. Forsíða
  2.  » 
  3. Útgáfa RA
  4.  » 
  5. Bækur
  6.  » Íslensk menning: Andlitsdrættir samtíðarinnar

Íslensk menning: Andlitsdrættir samtíðarinnar

by | 2. Dec, 2009 | Bækur, Fréttir, Gárur, Ritraðir RA, Útgáfa RA

Haukur Ingvarsson, Andlitsdrættir samtíðarinnar Íslensk menning V
Andlitsdrættir samtíðarinnar
Haukur Ingvarsson

Haukur Ingvarsson fjallar hér um síðustu skáldsögur Halldórs Laxness, þ.e. Kristnihald undir Jökli, Innansveitarkroniku og Guðsgjafaþulu.

Hann fjallar um viðtökusögu þessara skáldsagna og sýnir fram á hvernig hver ritdómari hefur búið sér til sína eigin mynd af Halldóri og dæmt hverja nýja bók hans út frá henni. Með greiningu sinni á sögunum varpar Haukur ljósi á þær nýju og merkilegu tilraunir með skáldsagnaformið sem þær fela í sér og stöðu þeirra meðal annarra verka Halldórs.

Tengt þessu er endurmat hans á Skáldatíma, sem flestir hafa túlkað sem uppgjör skáldsins við sína pólitísku fortíð. Haukur færir sannfærandi rök fyrir því að Halldór geri þar einnig upp við sína póetísku fortíð, þ.e.a.s.félagslegt raunsæi hinna stóru epísku verka sinna, og leggi drög að þeirri fagurfræði sem búi að baki síðustu skáldsögum hans.

 

Íslensk menning er röð veigamikilla fræðirita sem fjalla um ýmsar hliðar sögu og menningar. Ritröðin er gefin út á vegum Hins íslenska bókmenntafélags og ReykjavíkurAkademíunnar.
Ritstjórar Adolf Friðriksson og Þorleifur Hauksson. Fimm bækur hafa komið út:

Sveinn Yngvi Egilsson, Arfur og umbylting. Rannsókn á íslenskri rómantík. (1999). Bókin fæst hjá Bóksölu stúdenta. Smelltu hér.
Guðmundur Hálfdanarson, Íslenska þjóðríkið – uppruni og endimörk. (2001) Bókin fæst hjá Bóksölu stúdenta. Smelltu hér.
Torfi H. Tulinius, Skáldið í skrifstinni. Snorri Sturluson og Egils saga (2004) Bókin fæst hjá Bóksölu stúdenta. Smelltu hér.
Ingunn Ásdísardóttir, Frigg og Freyja. Kvenleg goðmögn í heiðnum sið (2007) Bókin fæst hjá Bóksölu stúdenta. Smelltu hér.
Haukur Ingvarsson, Andlitsdrættir samtíðarinnar. Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness (2009) Hægt að nálgast í opnum aðgangi á Rafhlöðinni. Smelltu hér.

_________________

Þessi texti er tekinn saman af Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur, 2. júlí 2024 meðal annars á grunni eftirfarandi heimilda:

Vefsafn.is, afrit af vef ReykjavíkurAkademíunnar, www.akademia.is, 10. desember 2007.
Vefsafn.is, afrit af vef ReykjavíkurAkademíunnar, www.akademia.is, 25. nóvember 2009