1. Forsíða
  2.  » 
  3. Útgáfa RA
  4.  » 
  5. Bækur
  6.  » Íslensk menning: Arfur og umbylting. Rannsókn á íslenskri rómantík

Íslensk menning: Arfur og umbylting. Rannsókn á íslenskri rómantík

by | 2. Jul, 1999 | Bækur, Fréttir, Ritraðir RA, Útgáfa RA

Sveinn Yngvi EgilssonÍslensk menning I
Arfur og umbylting. Rannsókn á íslenskri rómantík (1999)
Sveinn Yngvi Egilsson

Nítjánda öldin er tímabil rómantísku skáldanna í íslenskum bókmenntum, fagurkera á borð við Jónas Hallgrímsson, Grím Thomsen, Benedikt Gröndal og Gísla Brynjúlfssonar. En þeir voru annað og meira en ljóðrænir sveimhugar og náttúrudýrkendur. Þessi skáld vildu reisa þjóðlega menningu og skáldskap á grunni fornaldarinnar en voru jafnframt í hringiðu evrópskrar sögu og hugmynda. Þau sóttu sér yrkisefni í fornnorrænar goðsagnir, miðaldasögur og íslenska og erlenda frelsisbaráttu. Í ljóðum sínum lofsungu þau sögulega áhrifavalda eins og Napóleon Bónaparte, Lajos Kossuth og Jón Sigurðsson.
Í Arfi og umbyltingu fjallar Sveinn Yngvi Egilsson um úrvinnslu rómantísku skáldanna á bókmenntaarfi miðalda og tengsl þeirra við erlenda skáldjöfra og samtímaviðburði. Bókin veitir ferskum straumum inn í rannsóknir á íslenskri rómantík og fær lesandann til að hugsa á nýjan hátt um ljóðagerð nítjándu aldar.

 


Íslensk menning
er röð veigamikilla fræðirita sem fjalla um ýmsar hliðar sögu og menningar. Ritröðin er gefin út á vegum Hins íslenska bókmenntafélags og ReykjavíkurAkademíunnar.
Ritstjórar eru Adolf Friðriksson og Jón karl Helgason.

Arfur og umbylting er fyrsta bókin sem kemur út í þessari ritröð, hún fæst hjá Bóksölu stúdenta. Smelltu hér.

_________________

Þessi texti er tekinn saman af Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur, 2. júlí 2024 meðal annars á grunni eftirfarandi heimilda:

Vefsafn.is, afrit af vef ReykjavíkurAkademíunnar, www.akademia.is, 10. desember 2007.
Vefsafn.is, afrit af vef ReykjavíkurAkademíunnar, www.akademia.is, 25. nóvember 2009