12.11.2008
Fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl. 20 hefst samræðustundin Ljáðu þeim eyra.
Kvöldið hefst með spjalli Þuríðar Hjálmtýsdóttur sálfræðings í ReykjavíkurAkademíunni og síðan kynna tveir heimspekingar bækur sínar:
Gunnar Hersveinn kynnir bókina Orðspor
Vilhjálmur Árnason kynnir bók sína Farsælt líf – réttlátt samfélag
Samræðustjóri verður Clarence E. Glad guðfræðingur, stjórnarformaður RA.
Kaffihúsið Súfistinn á annarri hæð í Iðuhúsinu Lækjargötu 2 A í Reykjavík og ReykjavíkurAkademían hafa tekið upp samstarf með það fyrir augum að skapa notalegan samræðuvettvang í hringiðu atburðanna, þar sem samræður og tónlist fléttast við bókaflóðið.
Markmiðið með þessu samstarfi er að bæta samræðu- og kaffihúsamenningu og stefna saman ólíkum sjónarhornum.
Á hverju fimmtudagskvöldi fram að jólum verður samræðusamkoma undir heitinu Ljáðu þeim eyra klukkan 20 í Súfistanum. Þar munu tveir höfundar lesa úr bókum sínum og einn framsögumaður frá ReykjavíkurAkademíunni spjalla um þema sem tengist bókunum út frá sínum sjónarhóli. Tónlist verður í umsjá Hjörleifs Valssonar fiðluleikara. Síðan verða almennar samræður