Loftslagsbreytingar á mannamáli – Hnattrænt samhengi og áhrif loftslagsbreytinga á búsetu, atvinnulíf og menningu – er heiti málstofu sem haldin verður í hátíðarsal ReykjavíkurAkademíunnar laugardaginn 10. apríl frá kl. 13 – 15:30. Heitt á könnunni og allir velkomnir
Dagskrá
Veðurfarsbreytingar á Íslandi
– Halldór Björnsson veðurfræðingur
“Hún heitir móðir jörð og hún er með hita” – um upplifanir og útskýringar frumbyggja Kanada á loftslagsbreytingum
– Björk Bjarnadóttir umhverfisþjóðfræðingur
Loftslagsbreytingar í norðri – Sundrung eða samvinna? -Auðlindadeilur og umhverfis-stjórnmál á óvissutímum
– Auður H. Ingólfsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur
Siðleysi á heimsmælikvarða
– Ólafur Páll Jónsson heimspekingur
Fundarstjóri verður Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
Frekari upplýsingar veita
Einar Ó. Þorleifsson s: 857-2161 og Guðrún Hallgrímsdóttir s: 899-7783