Gylfi Gunnlaugsson og Clarence E. Glad munu kynna rannsóknir sínar í Öndvegiskaffi ReykjavíkurAkademíunnar í hádeginu fimmtudaginn 27. apríl, kl. 12:00. Heiti erindisins er: „Menningararfur hverra? Íslenskar fornritarannsóknir og áhrif þeirra 1780-1830“ og byggir á niðurstöðum rannsókna þeirra undanfarin þrjú ár. Verkefnið hlaut styrk úr Rannsóknasjóði Rannís árið 2014.
Léttar veitingar á boðstólum. Allir velkomnir!