Markmið H21 málþinga (Hugmyndir 21. aldarinnar) er að stuðla að þverfaglegri umræðu innan félags- og hugvísinda um strauma og stefnur í mannvísindum samtímans. Á hverju málþingi er stefnt saman fjórum nýdoktorum á sviði félags- og hugvísinda sem kynna rannsóknir sínar, ræða kenningarlegar undirstöður og tengingu við fræðilega strauma samtímans. Til þess að ná fram settum markmiðum eru fengnir fyrirlesarar úr ólíkum greinum hug- og félagsvísinda og við skipulag málþinganna er reynt að efla umræður og finna sameiginlega þræði fræðimannanna.
Hjúkrun í 100 ár. Sögusýning í Árbæjarsafni
Hjúkrun í 100 ár Nýlega opnaði í Árbæjarsafni sögusýningin Hjúkrun í 100 ár sem sett var upp í tilefni 100 ára afmælis Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh). Sýningin segir sögu hjúkrunar í samhengi við breytingar á stöðu kynjanna og þróunar í tækni og vísindum....
Um stjórnsýslu Rannís. Grein í Morgunblaðinu
Hér á eftir er birtur texti greinar sem biritst í Morgunblaðinu í dag, 1. ágúst 2019 eftir Ingunni Ásdísardóttur og Hauk Arnþórsson. Inngangur Í vor og sumar höfum við orðið vitni að einstæðum vandræðagangi og jafnvel lögbrotum Rannís í meðferð máls sem varða...
Ársskýrsla RA 2018
Ársskýrsla ReykjavíkurAkademíunnar ses. (RA) fyrir árið 2018 hefur verið birt. Að þessu sinni er stikklað á stóru í skýrslunni sem er gerð að Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur sem tók við stöðu framkvæmdastjóra RA um miðjan október 2018. ReykjavíkurAkademían ses (RA ses)...
Aðalfundur RA 2019
Aðalfundur ReykjavíkurAkademíunnar var haldinn fimmtudaginn 20. júní. Mörður Árnason stýrði fundi og Þorleifur Hauksson ritaði fundargerð. Að venju gerði formaður stjórnar félagsins, Ingimar Einarsson, grein fyrir störfum stjórnar og Arnþór Gunnarsson gjaldkeri kynnti...
Starfsstyrkir Hagþenkis 2019
ReykjavíkurAkademían óskar demónunum Unni Óttarsdóttur, Báru Baldursdóttur, Clarance Glad og Ingunni Ásdísardóttur og öðrum styrkþegum Hagþenkis -sem margir hverjir eru góðkunningar Akademíunnar og félagar í Félagi ReykjavíkurAkademíunnar - innilega til...
Af hetjum og hindrunarmeisturum
HIT – Heroes of Inclusion and Transformation / HIT – Hetjur inngildingar og umbreytingar Nýlokið er sex þjóða Erasmus+ verkefni sem ReykjavíkurAkademían tók þátt í. Verkefnið, HIT – Heroes of Inclusion and Transformation (HIT – hetjur inngildingar og umbreytingar) og...
Úthlutað úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna
Í dag var úthlutað úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna. 23 hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni, þar á meðal voru þau Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla ,Hjörleifur Hjartarson, Íris Ellenberger og Unnur Óttarsdóttir sem öll eru starfandi í...
Úthlutað úr Þróunarsjóði námsgagna
Í dag var úthlutað úr Þróunarsjóði námsgagna. Meðal styrkþega er Akaemóninn Anna Dóra Antonsdóttir. Til hamingju! Nánari upplýsingar um styrkþega eru á vef sjóðsins.
Úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna
Í dag var úthlutað úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna. 23 hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni, þar á meðal voru þau Ásta KristínBenediktsdóttir, Hafdís Erla ,Hjörleifur Hjartarson, Íris Ellenberger og Unnur Óttarsdóttir sem öll eru starfandi í...
Úthlutun úr Þróunarsjóði námsgagna 2019
Í dag var úthlutað úr Þróunarsjóði námsgagna. Meðal styrkþega er Demóninn Anna Dóra Antonsdóttir. Nánari upplýsingar um úthlutunina og styrkþega ársins eru að finna á heimasíðu Rannís. Innega til hamingju!