Miðstöð einsögurannsókna (Me) var rannsóknarstofnun starfrækt í ReykjavíkurAkademíunni. Forstöðumaður hennar er dr. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og forgangsmaður einsögunnar á Íslandi. Hlutverk Miðstöðvar einsögurannsókna er að standa að sjálfstæðum rannsóknum á sviði einsögu, miðla og gefa út fræðiverk þar sem aðferðir einsögunnar eru nýttar, stuðla að grunnrannsóknum á fjölbreyttum tegundum persónulegra heimilda í handritum ásamt því að vinna að þróun aðferða- og hugmyndafræði einsögunnar í framtíðinni. Miðstöð einsögurannsókna flutti úr Akademíunni árið 2012 þegar Sigurður Gylfi flutti sig yfir til Þjóðminjasafns Íslands.