(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » HIT-verkefnið valið á sýningu EPALE

HIT-verkefnið valið á sýningu EPALE

by | 14. okt, 2019 | Fréttir

Evrópuverkefnið HIT – heroes of inclusion and transformation, sem ReykjavíkurAkademían tók þátt í á árunum 2017-2019, hefur verið valið til sýningar á evrópsku vefgáttinni EPALE. Tuttugu og átta úrvalsverkefni voru valin til að vekja athygli á fjölbreytileika fullorðinsfræðslu í álfunni og gæðum verkefna sem styrkt eru af menntaáætlunum Evrópusambandsins. Á íslensku heitir HIT-verkefnið Hetjur inngildingar og umbreytingar og snýst um að aðlaga þekkta hugmynda- og aðferðafræði Hetjuferðarinnar (The Hero´s Journey) að skapandi vinnu til valdeflingar jaðarsettum hópum. Afrakstur vinnunnar var gefinn út í bókinni Among Heroes and Demons sem á íslensku heitir Af hetjum og hindrunarmeisturum. Verkefninu var stjórnað af Heimilislausa leikhúsinu í Bratislava, Slóvakíu. Til sýningar var einnig valið verkefnið I´m not a racist but… sem stjórnað er af Intercultural Iceland.
#eramusdays2019

HIT-rannsakendurHIT á EPAL-vefnum

 

 

 

 

 

 

Tengill á Evrópsku vefgáttina EPALE