Út er komin skýrsla ReykjavíkurAkademíunnar Opinber fjármögnun rannsókna fræðafólks sem starfar sjálfstætt. Tillögur til úrbóta. Í skýrslunni er bent á hversu lokað og óaðgengilegt hið opinbera fjármögnunarkerfi er fræðafólki sem stunda rannsóknir og fræðamiðlun utan háskólanna.
Annars vegar vegna þess að Rannsóknasjóður hefur frá því hann var stofnaður árið 2004 lagt áherslu á að fjármagna doktorsnám og rannsóknahópa sem lúta slíkum skilyrðum að erfitt er fyrir fræðafólk sem starfar sjálfstætt að uppfylla þau. Hins vegar vegna vanfjármögnunar Starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi fræðimanna sem verður að teljast meginstoð rannsókna fræðasamfélagsins utan háskólanna.Alvarleikann má sjá af því að:
- Starfslaunasjóður úthlutaði á árinu 2022 45 miljónum til 14 verkefna sem að meðaltali fengu styrk að upphæð 491.000 í 6,64 mánuði til að sinna rannsóknum og fræðamiðlun.
- Frá árinu 2015 hefur Starfslaunasjóður einungis stækkað um 10 miljónir. Á sama tíma óx sá hluti Rannsóknasjóðs sem úthlutar til nýrra verka um 700 miljónir, og fór úr 724 miljónum í 1,4 miljarð.
Til þess að hefja umræðuna um nauðsynlega breytingu og aðgengi fræðafólks sem starfar sjálfstætt að opinberu fjármagni til rannsókna þá er lagt til í skýrslunni að Starfslaunasjóðurinn verði stækkaður í 550 miljónir, að heiti sjóðsins verði breytt í Rannsóknasjóð sjálfstætt starfandi fræðafólks og að sjóðnum verði sett lög sambærileg lögum um Rannsóknasjóð.
Markmið með tillögunum er að jafna aðgengi fræðafólks sem starfar sjálfstætt og þess sem gegnir akademískum stöðum, að opinberum styrkjum til rannsókna. Einnig að efla grunnrannsóknir og auka fjölbreytni rannsókna, að tryggja nýliðun og sérfræðiþekkingu íslensks fræðasamfélags og að skila samfélaginu niðurstöðum rannsóknanna á íslensku. Hlutverk sjóðsins og mikilvægi fyrir íslenskt fræðasamfélag er því umtalsvert eins og sjá má á listanum hér neðst.
Skýrslan Opinber fjármögnun, byggir á vinnu starfshóps stjórnar ReykjavíkurAkademíunnar um umgjörð rannsókna fræðasamfélagsins utan háskólanna. Í honum sitja þau Lilja Hjartardóttir stjórnmálafræðingur, Dr. Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur, Gylfi Gunnlaugsson bókmenntafræðingur og Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir sagnfræðingur sem jafnframt ritstýrði skýrslunni.
Margþætt hlutverk rannsóknasjóðs fræðafólks sem starfar sjálfstætt:
-
- Jafnar samkeppnisstöðu fræðafólks hvað varðar aðgang að opinberu fjármagni óháð því hvort það gegnir stöðu við háskóla eða starfi sjálfstætt að rannsóknum og fræðamiðlun.
- betri nýting menntunar á sviði hug- og félagsvísinda.
- eykur samkeppnishæfni einstaklinga á vinnumarkaði og auðveldar þeim að nýta menntun sína og hugvit.
- styður ungt fræðafólk í upphafi akademísks ferils þess og tryggir nýliðun akademísks starfsfólks háskólanna.
- gerir fræðafólki kleift að velja sér viðfangsefni byggt á áhuga þess og þekkingu
- fangar upp þekkingu sem ekki fær hljómgrunn innan núverandi sjóðakerfis.
- fjölgar rannsóknum á breiðara sviði og eykur þannig sveigjanleika og fjölbreytni háskóla- og rannsóknasamfélagsins.
- skapar brú milli háskólanáms og atvinnulífs.
- auðveldar nýdoktorum frá erlendum háskólum að fóta sig í íslensku rannsóknaumhverfi.
- bætir aðgengi samfélagsins að nýrri þekkingu ritaðri á íslensku sem efla og auðga íslenskt samfélag.
- styður þá sem lokið hafa háskólagráðu til þess að miðla rannsóknum sínum til samfélagsins.
- bætir aðgengi að rannsóknum nýdoktora frá erlendum háskólum.
- auðveldar frumkvöðlum að nálgast nýjar hugmyndir og hasla sér völl á atvinnumarkaði í krafti hugvits.
- skilar samfélaginu þekkingu sem styður við uppbyggingu nýsköpunarhugsunar og fyrirtækja á sviði fræða.
- styður við fræðafólk sem í lok starfsævinnar vill miðla þekkingu sinn til samfélagsins.
- auðveldar fræðafólki sem starfar sjálfstætt að koma á samstarfi við erlenda háskóla og þar með aukna sókn í evrópska sjóði.
- auðveldar menntuðu fólki að starfa óháð staðsetningu og styður þar með við æskilega byggðaþróun.
- bætir nýtingu fjármagns með hlutfallslegrar lækkunar kostnaðar við utanumhald og veitingu styrkja.
Skýrslan er innlegg í mikilvæga umræðu. Þeir sem hafa ábendingar eða athugsemdir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu ReykjavíkurAkademíuna í gegnum netfangið ra [hja] akademia.is