Öndvegiskaffi RA er að þessu sinni tileinkað styrktarsjóðum á vettvangi rannsókna, lista og menningarmiðlunar. Þau Sigrún Ólafsdóttir og Viðar Helgason hjá Rannís munu halda stutt erindi um alþjóðleg sóknarfæri íslenskra fræðimanna í erlenda sjóði og samstarfsmöguleika við fræðimenn annarra landa. Að venju er kaffið haldið í fundarsal RA á 4. hæð í Þórunnartúni 2, kl. 12:00 stundvíslega. Léttar veitingar í boði. Allir hjartanlega velkomnir!
Viðar er landstengiliður eftirfarandi undiráætlana Horizon 2020: • Umhverfi • Geimur (SPACE) • Hugmyndir (ERC) • Sameiginlega rannsóknamiðstöðin (JRC). Viðar veitir einnig upplýsingar um Enterprise Europe Network og Uppbyggingasjóð EES á sviði stúdenta- og kennaraskipta og rannsókna.
Sigrún er landstengiliður eftirfarandi undiráætlana í Horizon 2020: Heilbrigði og lýðheilsa; fæðuöryggi, landbúnaður og sjávarrannsóknir; örtækni, efnistækni, framleiðslutækni og líftækni; upplýsingatækni og er jafnframt landstengiliður COST áætlunarinnar.