Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
Stjórn ReykjavíkurAkademíunnar (RA) óskar að ráða framkvæmdastjóra frá 1. nóvember 2016 eða samkvæmt samkomulagi.
Framkvæmdastjóri hefur umsjón með starfsemi og málefnum ReykjavíkurAkademíunnar í umboði stjórnar.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á fjármálum, skrifstofuhaldi og starfsmannamálum, skipulags- og húsnæðismálum RA. Jafnframt sinnir hann kynningarmálum og samstarfi við stofnanir og fyrirtæki í umboði stjórnar.
Helstu verkefni
- Stefnumótun RA í samvinnu við stjórn.
- Umsýsla rannsóknarverkefna og efling rannsókna á vegum RA.
- Umsjón með kynningarmálum.
- Umsjón með samningum RA við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
- Rekstur og fjármálaumsýsla.
- Fjáröflun til starfsemi RA.
- Umsjón með funda- og ráðstefnuhaldi í samvinnu við stjórn og einstaka félaga.
Hæfniskröfur
- Meistaragráða eða ígildi meistaraprófs er æskileg.
- Reynsla af stjórnun, fjármálum og rekstri.
- Reynsla af rannsóknum og/eða utanumhaldi rannsóknarverkefna.
- Þátttaka í viðburðastjórnun er kostur.
- Faglegur metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð tungumálakunnátta.
Upplýsingar
Laun taka mið af gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsókn fylgi kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Einnig fylgi náms- og starfsferilsskrá umsókninni.
Starfshlutfall er 75% en gæti orðið meira með auknum umsvifum.
Umsóknarfrestur er til og með 20.09.2016.
ReykjavíkurAkademían er sjálfseignarstofnun sem byggir á um tuttugu ára sögu félags sjálfstætt starfandi fræðimanna í hug- og félagsvísindum á Íslandi. Í húsnæði RA starfa að jafnaði um 40 manns.
Nánari upplýsingar veitir formaður stjórnar RAses, Ingunn Ásdísardóttir í síma 896 8312 eða gegnum netfangið [email protected]
Umsóknir skal jafnframt senda til formanns á sama netfang.