
Dagana 2.-8. september 2017 verður haldið námskeið/vinnustofa í borgunum Kranjska Gora og Kranj í Svóveníu. Þangað er boðið þremur fulltrúum frá hverju landanna sjö en námskeiðið er ætlað leiðbeinendum (fagfólki eða sjálfboðaliðum) sem vinna á skapandi hátt með félagslega einangruðum ungmennum. Stílvopnið leitar að tveimur leiðbeinendum sem hafa áhuga á að sækja vinnustofuna. Nánari upplýsingar fást með því að senda tölvupóst til Bjargar Árnadóttur, framkvæmdastjóra Stílvopnsins, á netfangið: [email protected]