
Opinn fyrirlestur: Aukið minni og tilfinningaleg velferð með minnisteikningu
Dr. Unnur Guðrún Óttarsdóttir kennari og listmeðferðarfræðingur og fræðikona við ReykavíkurAkademíuna flytur fyrirlesturinn Aukið minni og tilfinningaleg velferð með minnisteikningu í Dagsbrún, fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar. Tilefnið eru niðurstöður minnisteiknirannsóknar sem birtar voru nýlega í opnum aðgangi í tímaritinu Education Sciences og í bókarkafla sem gefin var út hjá Routledge.