Í dag bárust þau ánægjulegu tíðindi að bók Akademónsins Ragnhildar Hólmgeirsdóttur Villueyjar hefur verið tilnefnd fyrir hönd Íslands til barna- og ungligabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2020. Ragnhildur var einnig tilnefnd til verðlaunanna árið 2017 fyrir Koparborgina. Í þetta sinn er Lani Yakamoto tilnefnd ásamt Ragnhildi og óskar ReykjavíkurAkademían þeim báðum innilega til hamingju. Nánari upplýsingar um allar tilnefningarnar má finna á vefnum Norden.org Þar má meðal annars lesa nánar um bók Ragnhildar.