- This event has passed.
Háskólar í fremstu röð – markaðsvæðing sem ýtir undir kynjamisrétti?
6. December 2019 kl. 12:00 - 13:00
Fyrirlestur Finnborgar Salóme Steinþórsdóttur, nýdoktors í kynjafræðum er hluti af fundarröðinni Þekking til sölu? Markaðsvæðing akademíunnar þar sem velt er upp spurningum á borð við Er þekking söluvara? Eru háskólar reknir eins og smjörlíkisverksmiðjur? Er menntun einkahagsmunir eða almannahagsmunir? Eru nemendur neytendur á markaði?
Fyrirlesturinn er haldinn í sal Íslenskrar erfðagreiningar. Nánari upplýsingar koma síðar.
Að fundaröðinni standa MARK, miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna, RannMennt, rannsóknastofa um menntastefnu, alþjóðavæðingu og félagslegt réttlæti og ReykjavíkurAkademían.
Fyrirlestraröðin er styrkt af rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, Félagsvísindasviði og Menntavísindasviði.