- This event has passed.
Í Öndvegi: Hjörleifur Hjartarson og Njála á hundavaði
10. March 2022 kl. 12:00 - 13:00
FYRIR FÓLK Í HÚSI
Hjörleifur Hjartarson sest í Öndvegi stóra borðsins og kynnir verk sitt og Eirkís Stephensens, Njála á hundavaði sem nú er sýnd á fjölum Borgarleikhússins. Í framhaldi af því – síðar um kvöldið – er ætlunin að fjölmenna á sýninguna. Við sem höfum farið á sýningar Hunds í óskilum vitum að búast má við góðri skemmtun – en eins og þeir félagar lofa þá munu þeir hlaupa meira en hæð sína í öllum herklæðum í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt.
Skráningarlisti er á Stóraborði til og með 18. febrúar.
(Mynd sótt á vef Borgarleikhússins)