- This event has passed.
Þorgerðarmál
17. September 2022 kl. 13:00 - 16:00
Þorgerðarmál
til minningar um dr. Þorgerði H. Þorvaldsdóttur, sagn- og kynjafræðing, sjálfstætt starfandi fræðimann í ReykjavíkurAkademíunni og sérfræðing hjá Sagnfræðistofnun.
Markmið Þorgerðarmála er að varpa ljósi á framlag dr. Þorgerðar H. Þorvaldsdóttur, sagn- og kynjafræðings til fræðilegrar og samfélagslegrar umræðu og kynna nýjar áherslur í þeim málaflokkum sem hún brann fyrir. Þar á meðal má nefna jafnrétti í víðum skilningi, kynjaða menningu og kynjaímyndir. Ennfremur orðræður og hugmyndir sem tengjast „ótrúlegri fegurð íslenskra kvenna“, „hinu jafnrétta norðri“, útvíkkun jafnréttishugtaksins, takmörkum kosningaréttarins, ímyndum rakara- og hárgreiðslustofa og líkamsbyltingum kvenna.
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á netfangið ra [hja] akademia.is fyrir kl. 16 fimmtudaginn 15. september 2022. Málþingið er tekið upp og verður gert aðgengilegt á síðu Þorgerðamála og öðrum miðlum ReykjavíkurAkademíunnar.
Dagskrá:
Dr. Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur í ReykjavíkurAkademíunni, setur málþingið.
Dr. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands: Listin að kafa til botns og fljúga hátt í senn.
Dr. Guðný Gústafsdóttir, kynjafræðingur og verkefnisstjóri við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands: Í fótspor Fjallkonunnar.
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla Íslands: Konur, klæðnaður og vald. Íslenskar konur í buxum að fornu og nýju.
Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur í ReykjavíkurAkademíunni: Konur á mörkuðum.
Stutt hlé
Linda Vilhjálmsdóttir, rithöfundur flytur fjallkonuljóðið úr ljóðabókinni Smáa letrið.
Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Bifröst og fellow við Columbia- háskóla: Þor í fræðum − skarphygli Þorgerðar.
Dr. Erla Hulda Halldórsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands: Sagnfræðin, femínisminn og fortíðin.
Dr. Irma J. Erlingsdóttir, prófessor í frönskum samtímabókmenntum og forstöðumaður Alþjóðlegs jafréttisskóla (GEST) og RIKK: Afbygging sem aðferð. Lestur Þorgerðar H. Þorvaldsdóttur á íslenskum kynjaveruleika.
Fundarstjóri: Dr. Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, viðskipta- og stjórnmálafræðingur, dósent við Háskólann á Bifröst.
Skipuleggjendur: Bára Baldursdóttir sagnfræðingur og Lilja Hjartardóttir stjórnmálafræðingur.